Skítt með þig !

Það er með ólíkindum að fylgjast með fréttaflutningi þessa dagana. Milli þess að Jóhann og Steingrímur lofa hvort annað fyrir vel unnin störf og hvað þeim hefur tekist vel við að halda þjóðarskútunni á floti fáum við fréttir sem þessar.
Hér áður fyrr var talið að hækkun áfengi væri í raun forvörn, því meira sem brennsinn kostar því minna er drukkið af honum sem aftur færir sparnað í heilbrigðiskerfið vegna fækkunar á áfengistengdum sjúkdómum. Menn hafa þó hingað til áttað sig á að það er takmörk fyrir því hvað má í raun hækka verðið, því hærra sem verðið er því meiri líkur eru á að aðgerðin snúist upp í andhverfu sína. Á þessum sannindum hafa núverandi ráðmenn ekki áttað sig á og enn einu sinni skal farið upp fyrir þak og rjáfur svo ríkissjóður geti nú örugglega grætt á forvörninni með auknum tekjum til ríkissjóðs og forvarnargildið látið lönd og leið enda engan skyndigróða þar að finna. Það er sem sagt ekki verið að huga að bættri heilsu heldur auka tekjurnar og til þess að svo megi verða verður landinn að drekka jafnmikið á næsta ári og hann gerði síðasta ár. En hefur þetta gengið eftir? Nei, því landinn er ekki fífl, flestir dragar úr drykkjunni og kaupa sér sjaldnar vín , aðrir brugga eðalvín t.d. úr bláberjum og krækiberjum, enn aðrir kaupa smyglvarning og sumir hreinlega hætta að drekka áfengi og kaupa sér eina og eina jónu, enda miklu ódýrara segja þeir sem þekkja til, þar sem engin ríkisgjöld eru innheimt af henni. Þetta hafa unglingarnir okkar margir áttað sig á og á meðan menn baða sig í gleðinni yfir niðurstöðu rannsókna sem sýna að dregið hafi úr drykkju ungmenna sitja þau æði mörg upp í sófa og fá sér smók.
Í öllu falli hafa auknar álögur ríkisins ekki skilað sér í auknum tekjum þetta árið og ótrúlegt að enn skuli vera farið af stað með fjárlagafrumvarp þar sem gert er ráð fyrir auknum tekjum af minnkandi sölu áfengis.

Og nú skal hækka bensíngjaldið sem hækkað var fyrr á þessu ári. Ekki hefur sú hækkun skilað sér til ríkissjóðs því auðvitað hefur skattpíndur lýðurinn brugðist við á þann eina hátt sem mögulegur var, að draga úr notkun bifreiða sinna. Umhverfisvænt er það ekki Svandís Svavarsdóttir? Auðvitað mun sagan endurtaka sig. Sala eldneytis mun dragast saman, tekjurnar skila sér ekki til ríkissjóðs og einangrun fólks mun aukast.
Í raun og veru er verið að refsa fólki fyrir að draga saman seglin, refsa þeim fyrir að minnka drykkju og draga úr mengun. Skilaboð ríkisstjórnarinnar eru skýr: Drekktu meira helvítið þitt og notaðu bílinn meira því aðeins þannig fá bestu vinir okkar, fjármagnseigendur sitt. Skítt með þig, skítt með fjölskyldu þina, skítt með að þú eigir ekki fyrir matnum. Borgaðu stökkbreyttu skuldirnar þínar, drekktu frá þér ráð og rænu og farðu út að aka.


mbl.is Hækka skatta á bensín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læra menn ekki af fyrri mistökum?

Það er margt rangt sem gert var í þessari atburðarrás. Forsvarsmenn IE eiga vera menn og viðurkenna það. Það er líka margt sem ekki var gert og það eiga menn að laga.

Flugfélög hljóta að hafa til taks aðgerðaráætlanir þegar óvæntar uppákomur verða s.s. bilanir á flugvélum. Áætlanir sem taka til mismunandi aðstæðna og tíma sem óhappið verður á. Mér þykir það ekki kraftaverk að tekist hafi að útvega þeim farþegum sem það þurftu gistinu. Það er eðlileg ráðstöfun þegar ljóst er að seinkun verði á flugferð umfram nokkra klukkutíma.

Mér þykir það ekki ásættanlegt að hópur ungs fólks hafi verið látið dúsa frammi í flugstöðvarbyggingu þar sem gólfið var eina rúmstæðið sem boðið var uppá.

Mér þykir það ekki ásættanlegt að þeir farþegar hafi þurft að bíða í marga klukkutíma eftir drykk og mat.

Mér þykir það heldur ekki ásættanlegt að boð til farþega séu send með sms eða tölvupósti. Hér var um að ræða hóp ungs fólks sem var í skemmtiferð á Spáni og fæstir með tölvu enda netaðgangur á flugstöðinni enginn. Þau höfðu verið á flækingi allan daginn þar sem þau þurftu að tékka sig út af hótelinu um hádegi og margir símar batteríslausir. Aðgangur að rafmagni var ekki gefið mál á fugstöðinni. Flest þeirra eru með síma frá Nova og þarf af leiðandi ekki með síma í áskrift og inneign er fljót að klárast þegar þarf að hringja heim til Íslands til að reyna fá uppl. um hvað sé í gangi. Þau þurfa að borga sms frá flugfélaginu og inneigin klárast fljótt.

Mér þykir það heldur ekki ásættanlegt að uppl.um komutíma vélarinnar á vef Keflavíkurflugvallar séu kolvitlausar.

Það er ekki ásættanleg að ekki sé hægt að ná í nokkurn starfsmann flugstöðvarinnar, flugfélagsins og ferðaskrifstofunnar þegar flugi er aflýst um nótt.

Það er ekki ásættanlegt að þegar farþegar kveinka sér yfir að þurfa að sofa á gólfi flugstöðvarinnar sé þeim sagt að þau geti bara fundið sér hóteherbergi sjálf. Þetta svar hefður foreldrar með börn aldrei fengið, hvað þá gamalmenni og fatlaðir. Til að gera þeim lífið bærilegra hefði verið hægt að sækja teppi og kodda úr flugvélinni sem stóð við landganginn.

Það hefði líka verið hægt að kalla út fararstjóra frá þeirri ferðaskrifstofu sem selt hafði þessu unga fólki ferðirnar.

Það hefði einnig verið hægt að senda starfmann út af örkinni og kaupa vatn og mat fyrir þetta fólk. Allra best væri að ganga svo frá málum að einhver þeirra veitingastaða sem þar eru myndu opna í svona tilfellum. Upplagt að athuga það við endursoðun á aðgerðaráætlun flugfélagsins.

Það mætti einnig skoða hvers vegna áætlaður komutími flugs 5w184 frá Alicante var skráður kl.20.00 á vef Keflavíkurflugvallar á sama tíma og fólk úti beið enn eftir fréttum af flugi heim. Á vef flugvallarins í Alicante var ekkert flug skráð til Íslands þann 19. ágúst og var svo fram á kvöld.

Já það er margt hægt að læra af mistökum en til þess að svo geti orðið verða menn að viðurkenna að hafa gert mistök. Menn verða einnig að geta séð hvað hefði mátt gera á annan hátt og hvaða þættir hafa gleymst. Ég hefði haldið að IE væri búið að fá mörg slík tækifæri upp í hendurnar en svo virðist að þau hafi runnið þeim úr greipum.

Að lokum, farþegi sem hefur bókað og greitt fyrir ferð á ákveðunm degi, veikist og kemst hvergi fær ekki endurgreiðslu nema að geta sýnt fram á það með viðeigandi pappírum að veikindi hefðu hindrað hans för. Er þá ekki rétt að IE framvísi til þess gerðum pappírum um að raunverulega vélarbilun hafi verið að ræða sem hafi hrindrað för rúmlega 200 farþega með flugi 5w184 frá Alicante þann 17./18 ágúst s.l.?


mbl.is Búið að borga fyrir flugvélina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samið við farþega???


Einhverra hluta vegna fer um mig hrollur !
mbl.is Vélin fer í loftið kl. 23
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplýsingargjöf í molum

Hvernig væri að flugfelagið nýtti heimasíðu sína til þess að koma upplýsingum á framfæri!! Hef verið að reyna að ná í flugfelagið en biðin er endalaus og blessuð talvélin er ekki að gera sig. EKKERT er að finna á heimsíðunni sem gæti hjálpað til við upplýsingaleitm, engar fréttir af farþegum s.s. hvort þeim hafi verið hent út um hádegið eða hvort þeir fái að vera þar til vél finnst til að fljúga með farþegana heim, ekkert símanúmer já hreinlega akkúrat ekki neitt.

Ekki er að sjá á heimsíðu flugvallarins á Alicante að vél sé á áætlun til Íslands né á vef Keflavíkurflugvallar.

Takið ykkur nú saman í andlitinu Iceland Express og komið upplýsingum á framfæri á heimsíðunni ykkar...og svo megið þið taka fj....talvélina úr sambandi og gefa upp númer upplýsingafulltrúans !!!


mbl.is Allir komnir með gistingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldi þessi frétt raska næturró Jóhönnu og Steingríms?

 

Nei ætli það sé ekki borin von.  Komið á þriðja ár frá hruni og engin skjaldborg sjáanleg utan um heimili landsins.  Það er þó ekki eins og skjaldborgir hafi ekki verið reistar en þar hafa bankarnir og fjármálastofnanir notið forgangs ásamt þeim sem tóku þátt í darraðardansi útrásarvíkinganna með einum eða öðrum hætti.

Þeim sem tóku ofurlán í boði bankana til að kaupa hlutabréf í þeim hafa flestir fengið sínar skuldir niðurfelldar og afskrifaðar.  Nema stofnfjáreigendur sparsjóðanna, þeir skulu blæða. 

Ekkert hrín á þau skötuhjú sem nú stjórna skútunni. Almenningur skal blæða og borga fyrir sukk bankana og því til viðbótar fyrir misvitrar ákvarðanir stjórnvalda. 

Hvað varðar þau Steingrím og Jóhönnu um þá sem eiga ekkert eftir til framfærslu þegar búið að greiða þann kostnað sem fylgir að reka heimili og eiga börn?

Hvað varðar þau um að lán þessa fólks eru enn útbólgin vegna verðtryggingar sem nær þó ekki yfir laun þess´?  

Hvað varðar þau um að fólk geti sig ekki lengur hreyft vegna ofurverðs á bensíni m.a. hárra álaga af ríkisins hálfu?

Þau hafa greitt upp sínar húsnæðisskuldir, þau hafa komið börnum sínum á legg.  Þau hafa nóg að bíta og brenna. Þeirra laun duga.  

Þeirra bíður áhyggjulaust ævikvöld því þau hafa tryggt að börn morgundagsins munu greiða skuldir útrásarvíkinga og óreiðumanna.

Slík afrek hljóta að duga til eilífðar sæluvistar handan lífs.....eða hvað? 

 

 


mbl.is Svelta sig svo börnin fái mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvurs lags vinnubrögð eru þetta?

 

Það er með ólíkindum að það skuli vera fyrst núna sem neitun Byggðarstofnunnar kemur fram. 

Vissu starfsmenn Byggðarstofnunnar ekki neitt eða voru þeir að vonast eftir að enginn ræki augun í slóð þessara manna?  Hvers vegna kemur neitun Byggðarstofnunnar eftir að frétt RÚV um viðskiptasögu eigenda Lotnu kemur fram?

Skv. eins eiganda var allt klárt að hálfu stofnunarinnar, vantaði einungis formlegt samþykki Byggðarstofnunnar.

Nú verða starfsmenn Byggðarstofnunnar að koma fram með svör þó ekki væri nema fyrir þá starfsmenn sem nýráðnir eru og sáu fram á betri tíð. 

Síðan ætti viðkomandi starfsfólk Byggðarstofnunnar að taka poka sinn og finna sér vinnu við ,,eitthvað annað"!

 


mbl.is Samþykkir ekki kaup Lotnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn brást ekki sinni þjóð

Með þessari ákvörðun hefur forsetinn staðfest endanlega  að hann verður ekki keyptur til fylgilags við valdhafa hvers tíma. 

Stuðningur hans við þjóðina er gegnheill og sannur.

Takk fyrir  Ólafur Ragnar Grímsson

 


mbl.is Forsetinn staðfestir ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki mitt mál

 

 

Og þá vitum við það.  Fjármálaráðuneytið vísar ábyrgð á þriðja aðila, lofa bót og betrun en þeir sem tóku þátt í könnunni á grundvelli boðaðs trúnaðar mega eiga sig og naga sig í handabökin yfir því að hafa gleypt við loforðum um trúnað.

Hver skyldi staða okkar sem tóku þátt í þessari könnun vera? 

Það er ástæða að leggjast í rannsóknir


mbl.is Fjármálaráðuneytið lofar að bæta úr ágöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarlið farið á taugum!

Það er hreinlega bráðfyndið að sjá hvernig stjórnarliðar og  sinnar fara á taugum hver á fætur öðrum

Athugasemdarkerfi Eyjunnar lokað og tilkynnt að ef menn vilji tjá sig skuli það gert undir fullu nafni.  Það reyndar hreinsar vel út af senditíkum samfó og vg.

Reynt er með öllum ráðum að gera vefsíðuna kjosum.is óvirka og þegar það gekk ekki var farið af stað með ófrægingarherferð a la Samfylking.  Hirðin lætur ekki eftir sig liggja og dreifir boðskapnum á fésbókinni eins og þeir eigi lífið að leysa.

Þingmaður Samfylkingar Ólína Þorvarðardóttir hreinsar út í gríð og erg athugasemdum sem koma vegna skrifa hennar um Icesavesamninginn.  Þar segir hún okkur óbreyttu að hún sé í vinnu hjá þjóðinni en ekki þjóðin hjá henni og þess vegna eigi samningurinn ekki að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu.  Ég setti inn eina fyrirspurn varðandi hennar orð hennar um að útlit sé fyrir betri endurheimtur hjá þrotabúi Landsbankans..  Spurði ég hana hvaða upplýsingar hún hefði til að styðja þau orð.  Einnig bað ég þingmenn sem samþykktu Icesavesamninginn vegna þess að þeir væru í vinnu hjá þjóðinni að finna sér eitthvað annað að gera. Það væri komið nóg.  Kviss bang og ummælum eytt!

Setti inn þessi ummæli og sjáum hvað þau fá að standa lengi:

Ja hérna megin, ein spurning um upplýsingar um eignasafn Landsbankans og ummælum eytt. Ein bón ,,vinnuveitanda" til þingmanna sem ,,eru í vinnu" hjá þjóðinni og kviss bang, ummælum eytt.

Það þarf ekki nema einar kosningar og sjá..þingmönnum verðum eytt!!

 

 Það er nefnilega þannig að ef þingmenn standa sig ekki í vinnunni er þeim sagt upp í næstu kosningum..kviss bang og þeir farnir á augabragði !

 

 

 

 

 


alvarlegt lögbrot ráðuneytis!!

Það er merkilegt að þessi frétt skuli ekki vekja meiri athygli en kannski skiljanlegt í ljósi atburða dagsins.

Hér er um grafalvarlegt mál að ræða. Sett er af stað könnun á einelti innan ráðuneytisins. Algjör forsenda er að trúnaður ríki og ekki verið hægt að rekja svörin enda viðkvæmt mál og snúast oftar en ekki um gerendur úr hópi stjórnenda.

Í bréfi til starfsmanna er það tekið fram að ekki sé hægt að rekja svörin.Það reyndist einber lygi og svör vistuð ásamt upplýsingum um svarendur!

Fjármálaráðuneytið er uppvisst að lygum og misnotkun persónulegra upplýsinga.

Fer saksóknari af stað eða verða starfsmenn ráðuneytisins að kæra?

Hvar er fjármálaráðherra og ábyrgð hans? 

 

Leiðrétting:

mér barst ábending um að könnun hafi verið gerð meðal ríkisstarfsmanna svo rétt er að álykta að hún hafi ekki náð einungis til starfsmanna ráðuneytisins.  Annað er ekki staðfest s.s. hvenær könnunin var gerð.  Misnotkun nefni ég það þegar  svör eru rekjanleg til svarenda.


mbl.is Ráðuneyti braut lög um persónuvernd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband