Skítt með þig !

Það er með ólíkindum að fylgjast með fréttaflutningi þessa dagana. Milli þess að Jóhann og Steingrímur lofa hvort annað fyrir vel unnin störf og hvað þeim hefur tekist vel við að halda þjóðarskútunni á floti fáum við fréttir sem þessar.
Hér áður fyrr var talið að hækkun áfengi væri í raun forvörn, því meira sem brennsinn kostar því minna er drukkið af honum sem aftur færir sparnað í heilbrigðiskerfið vegna fækkunar á áfengistengdum sjúkdómum. Menn hafa þó hingað til áttað sig á að það er takmörk fyrir því hvað má í raun hækka verðið, því hærra sem verðið er því meiri líkur eru á að aðgerðin snúist upp í andhverfu sína. Á þessum sannindum hafa núverandi ráðmenn ekki áttað sig á og enn einu sinni skal farið upp fyrir þak og rjáfur svo ríkissjóður geti nú örugglega grætt á forvörninni með auknum tekjum til ríkissjóðs og forvarnargildið látið lönd og leið enda engan skyndigróða þar að finna. Það er sem sagt ekki verið að huga að bættri heilsu heldur auka tekjurnar og til þess að svo megi verða verður landinn að drekka jafnmikið á næsta ári og hann gerði síðasta ár. En hefur þetta gengið eftir? Nei, því landinn er ekki fífl, flestir dragar úr drykkjunni og kaupa sér sjaldnar vín , aðrir brugga eðalvín t.d. úr bláberjum og krækiberjum, enn aðrir kaupa smyglvarning og sumir hreinlega hætta að drekka áfengi og kaupa sér eina og eina jónu, enda miklu ódýrara segja þeir sem þekkja til, þar sem engin ríkisgjöld eru innheimt af henni. Þetta hafa unglingarnir okkar margir áttað sig á og á meðan menn baða sig í gleðinni yfir niðurstöðu rannsókna sem sýna að dregið hafi úr drykkju ungmenna sitja þau æði mörg upp í sófa og fá sér smók.
Í öllu falli hafa auknar álögur ríkisins ekki skilað sér í auknum tekjum þetta árið og ótrúlegt að enn skuli vera farið af stað með fjárlagafrumvarp þar sem gert er ráð fyrir auknum tekjum af minnkandi sölu áfengis.

Og nú skal hækka bensíngjaldið sem hækkað var fyrr á þessu ári. Ekki hefur sú hækkun skilað sér til ríkissjóðs því auðvitað hefur skattpíndur lýðurinn brugðist við á þann eina hátt sem mögulegur var, að draga úr notkun bifreiða sinna. Umhverfisvænt er það ekki Svandís Svavarsdóttir? Auðvitað mun sagan endurtaka sig. Sala eldneytis mun dragast saman, tekjurnar skila sér ekki til ríkissjóðs og einangrun fólks mun aukast.
Í raun og veru er verið að refsa fólki fyrir að draga saman seglin, refsa þeim fyrir að minnka drykkju og draga úr mengun. Skilaboð ríkisstjórnarinnar eru skýr: Drekktu meira helvítið þitt og notaðu bílinn meira því aðeins þannig fá bestu vinir okkar, fjármagnseigendur sitt. Skítt með þig, skítt með fjölskyldu þina, skítt með að þú eigir ekki fyrir matnum. Borgaðu stökkbreyttu skuldirnar þínar, drekktu frá þér ráð og rænu og farðu út að aka.


mbl.is Hækka skatta á bensín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þetta er komið gott! Nú verðum við að berja liðið (samlíking) út úr þinghúsinu annað kvöld með öllum tiltækum ráðum og tunnum!

Sigurður Haraldsson, 2.10.2011 kl. 12:55

2 Smámynd: Katrín

það er morgunljóst að þetta fólk veit ekki sinn vitjunartíma og þá verða heimili landsins að taka til sinna ráða!

Katrín, 2.10.2011 kl. 15:48

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Nú er pólitískur veruleiki okkar kominn á það stig að ég er hættur að trúa.

Er ekki einhver fréttamaður að reyna að sýnast sniðugur?

Árni Gunnarsson, 2.10.2011 kl. 17:13

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ALgjörlega sammála þér Katrín, svei þeim bara. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.10.2011 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband