Misskilningur þingmannsins
3.1.2010 | 15:13
Ágætu vinir
Nú er búið að samþykkja þennan óskapnað.
Skráum okkur öll á www.indefence.is
nú vantar bara nokkrar undirskriftir til að ná 40.000
Að auki skulum við senda þessi skilaboð á þingmennina sem samþykktu.
Ég kýs þig ekki, þú kaust með Icesave.
Nú er búið að samþykkja þennan óskapnað.
Skráum okkur öll á www.indefence.is
nú vantar bara nokkrar undirskriftir til að ná 40.000
Að auki skulum við senda þessi skilaboð á þingmennina sem samþykktu.
Ég kýs þig ekki, þú kaust með Icesave.
+++
Ofangreind skilaboð fékk ég á fésinu. Þau eru send af hópi sem kallar sig : Ég kýs þig ekki, þú kaust með Icesave.
Að ásaka Indefence fyrir að standa fyrir fjöldapóstsendingum er algjör misskilningur hjá þingmanninum.
Þó innihald pósts séu manni ekki að skapi er óþarfi að rjúka upp á nef sér og verra er að hafa menn fyrir rangri sök.
Þingmenn eru þjónar fólksins með opinbert netfang sem greitt er af þjóðinni. Þeir verða að þola það að fólkið láti í sér heyra mislíki þeim. Hitt er svo annað mál að fólk á að gæta virðingar sinnar og láta vera að hnýta gífuryðrum í fólk.
Ætli þingmönnum líði ekki nógu illa fyrir, a.m.k. þeim sem sögðu ekki það sem þeir meintu. Hinum já hinum er einfaldlega bara ekki bjargandi,
|
Kannast ekki við fjöldapóst |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:17 | Facebook

annaed
polli
baldher
vikari
bjarnihardar
skordalsbrynja
georg
gudrunjona
iador
hlf
heimssyn
jakobk
jonmagnusson
katan
lydurarnason
majabet
olinathorv
vertinn
rannthor
fullvalda
framtid
siggisig
sigurjonth
vefritid
ylfamist







Athugasemdir
Það er vissulega manndómsmerki ef þeim líður illa annars væru þeir harðsvíraðir
Sigurður Þórðarson, 3.1.2010 kl. 15:44
Eigum við ekki að ætla það að þeim sem greiddu atkvæði gegn sinni sannfæringu sé svolítið bumbult....aðrir eru pirraðir
Katrín, 3.1.2010 kl. 15:50
Það hlýtur að vera þung sálarbyrði að neyðast til þess að kjósa gegn sannfæringu sinni.
En einnig merki um þrælslund að gera það. En sósíalístar hafa ávallt skotið liðhlaupa hnakkaskoti . Vegna þessa kusu þeir allir sem einn og enginn þingmaður skilaði auðu.
Ógnarstjórn.
En kannski voru þeir allir syngjandi glaðir og samstíga í þessu smámáli, þingræðismennirnir okkar .
Góðar stundir
Árni Þór Björnsson, 3.1.2010 kl. 23:20
Það þarf enginn að segja mér að Ólína Þorvarðardóttir hafi kosið af þrælslund. Hún hefur hugsað þetta mál vel og tekið afstöðu, ef ég þekki hana rétt. Ólína er hugrökk kona.
Vestfirðingur (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 23:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.